Ný vefsíða / New website

Nýja vefsíðan okkar www.breyta.is er komin í loftið!

Our new website www.breyta.is is online!

Ný skrifstofa / New office



Breyta arkitektar eru þessa dagana að leggja lokahönd á nýja skrifstofu sína við Ráðhústorg 7. Í sama húsnæði eru fatahönnuðir, ljósmyndari og grafískur hönnuður með vinnustofur sínar. Vefsíðan breyta.is mun opna innan fárra daga!

Breyta architects are currently finalizing the renovation of their new office on Ráðhústorg 7. Under the same roof you find fashion designers, photographer and graphic designer. The website breyta.is will open soon!

BREYTA arkitektar / BREYTA architects



BREYTA arkitektar munu opna skrifstofu sína í byrjun febrúar. Fylgist með!

BREYTA architects will open their office in early February. Stay tuned!

Nýtt upphaf / New beginning

Við erum að endurhanna útlit og nálgun Mynsturs þessa stundina. Fylgist með í janúar!

We are currently working on new identity and approach for Mynstur. Stay tuned in January!

Gilið og arkitektúr / Gilið and architecture



Í tilefni af Menningarvöku Akureyri þann 28. ágúst 2010 efndi Mynstur til götuvinnustofu í Hrím hönnunarhúsi í Listagilinu. Þemað var Gilið sjálft og hugmyndir um hvernig mætti gera götumyndina betri. Mynstur sýndi sínar hugmyndir og bauð gestum að bæta eigin tillögum við.

In occasion of Akureyri culture night the 28th of August 2010 Mynstur held a street workshop in Hrím designshop in Listagilið, (a cultural street in Akureyri). The theme was the street and how to improve the urban landscape. Mynstur contributed its own ideas and encouraged guests to add their own.

Götuvinnustofa / Streetworkshop



Á menningarvöku Akureyrar þann 28. ágúst munum við standa fyrir götuvinnustofu um Grófargilið í Hrím hönnunarhúsi, Kaupvangsstræti 10.

On Akureyri culture night the 28th of August we will run a street workshop on Grófargilið streetscape in Hrím design shop, Kaupvangsstræti 10.

Útskriftarverk / Graduation work by Sóley






Að hýsa annarskonar þarfir og væntingar:

Verkefnið snýst um íbúðarhúsnæði og staðsetningu þess innan þéttbýlis. Unnið er með blokkarhverfi frá áttunda áratugnum í Tallinn, Eistlandi. Þetta rúmlega 100.000 manna hverfi er illræmt fyrir að vera síðasta sovét-verkefnið í Tallinn sem aldrei var fullklárað. Borgarmynstrið einkennist því af vanræktum einskismannslöndum milli einhæfra panel blokka. Engu að síður hefur hverfið Lasnamäe upp á margt að bjóða.

Nýjustu framkvæmdir hafa einkennst af ónærgætnum byggingarmössum undir verslun og þjónustu. Engu að síður er mikil hefð fyrir smærri frumkvæðum innan óformlegra rýma svo sem verslanir í kjöllurum, útimarkaðir, og garðrækt.

Tilraunir íbúa Lasnamäe til að gera yfirskalað umhverfið að heimili eru innblásturinn að íbúðum sem tengdar eru litlum verslunarhúsnæðum á jarðhæð. Hugmyndin er að búa til rými sem tengjast umhverfinu í umsjá íbúanna sjálfra. Á efri hæðunum eru stærri íbúðir með þakgörðum með útsýni yfir almenningsgarð. Húsin eru einföld og skipulag leitast við að raska sem minnst því sem fyrir er. Lóðréttir garðar vaxa upp með hliðum bygginganna.

Tilagan leitast við að vinna samhliða með þá litlu einingu sem heimilið er og flækjuna sem borgin er með það að markmiði að leggja til arkitektúr sem eykur gæði þess sem nú þegar er til staðar.

Leiðbeinendur: Inga Raukas og Toomas Tammis
EKA vor ´09

Housing alternative needs and expectations:

The project revolves around housing and it´s location within the urban fabric. The subject is a panel housing district from the eighties in Tallinn, Estonia. With over 100.000 inhabitants the area is notorious for being the last sovét-housing project in Tallinn and was never completed. The urban fabric is characterized by neglected plots in between monotonous panel blocs. Nevertheless the district of Lasnamäe has many things to offer.

Many recent building developments have been driven by insensitive solutions for commercial purposes. Nevertheless small initiatives have emerged in within informal spaces such as small shops in cellars, markets and gardening.

The residents attempts to scale down their surroundings is the inspiration of his housing project. The groundfloor has small workspaces each connected to an individual apartment above. The idea is to create a more fractioned commercial power in the area. The apartments above have roofgardens and a view over a park. The houses are small and simple in construction. Their planning seeks to make a minimum disturbance by being placed by existing streets.

The proposal is about working with the small unit of the home within the complexity of the city with the aim to contribute architecture that enhances the qualities that are already existing.

Tutors: Inga Raukas og Toomas Tammis
EKA spring ´09

Útskriftarverk sýning / Graduation work exhibition



25 Júní 2010 var slegið upp sýningu að Skúlagötu 28 (gamla Frón) sem stóð í 4 daga. Sýningin var haldin ásamt fyrrum samnemendum úr Listaháskólanum sem einnig útskrifuðust úr arkitektúr 2006 og hafa nú lokið framhaldsnámi.

The 25th of June 2010 an exhibition opened at Skúlagata 28 and lasted four days. The show was a cooperation with former co-students who graduated from the Iceland Academy of the Arts in architecture and have now finished their diploma work.

Þáttakendur í sýningunni voru / The participants were:
Arnhildur Pálmadóttir (IaaC, Barcelona)
Bergur Finnbogason (London)
Brynhildur Guðlaugsdóttir (IaaC, Barcelona)
Hlín Finnsdóttir (London)
Garðar Snæbjörnsson(London)
Jóhann Einar Jónsson (Aalto, Helsinki)
Sóley Lilja Brynjarsdóttir (EKA, Tallinn)

Tréhús / Treehouses by Sóley




Íbúðarhús sem vefur sig inn í hnitakerfi af trjám sem samspil nátturu og hins manngerða.

Leiðbeinendur: Veljo Kaasik, Anders Alver, Indrek Rünkla, Lilia Del Rio
EKA vor ´08

An apartment building that weaves itself within a grid of trees as an interplay of nature and the artificial.

Tutors: Veljo Kaasik, Anders Alver, Indrek Rünkla, Lilia Del Rio
EKA spring ´08